Kennari fékk lífstíðardóm fyrir hræðilegt morð á ættleiddu barni sínu: „Ég mun aldrei fyrirgefa þér“ | DV - Frjáls og óháður miðill
37 ára gamall menntaskólakennari hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að kynferðislega misnota og myrða 13 mánaða dreng sem hann ættleiddi ásamt sambýlismanni sínum. Jamie Varley var dæmdur á mánudaginn á Englandi fyrir að myrða Preston Davey. Þá var sambýlismaður hans, John McGowan-Fazakerley, dæmdur fyrir kynferðislega misnotkun á barni og vitorð að morði.