Steypubíllinn kominn úr ánni - Vísir
Steypubíll sem lenti í Þjórsá í gærkvöldi hefur verið fjarlægður úr ánni. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar en ökumaður bílsins fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun. Bíllinn er í eigu Steypustöðvarinnar samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu.