Var nýkominn heim með kærustunni þegar lífið sem hann þekkti var lagt í rúst - „Hver ert þú?“ | DV - Frjáls og óháður miðill
Danskur maður átti alls ekki von á því að þegar hann og kærasta hans til sjö ára komu á sameiginlegt heimili þeirra í Ribe myndi annar maður bíða eftir þeim. Í ljós kom að kærastan var einnig kærasta þessa manns og síðar kom upp úr krafsinu að hún átti í sambandi með einum mannni til viðbótar og lifði því þreföldu lífi. Mennirnir vissu ekki hver af öðrum og sá fyrstnefndi hefur nú stigið fram og sagt sögu sína til að koma því til skila að svona nokkuð geti komið fyrir karlmenn en ekki bara konur. Sálfræðingur telur mennina vera fyrirmyndir og gott sé að saga þeirra sé sögð.