Sviss hrökk í gang en Tékkum tókst ekki að vinna | DV - Frjáls og óháður miðill
Önnur umferð riðlakeppni HM hófst í dag.Tékkland og Suður-Afríka skildu jöfn. Tékkar komust yfir snemma leiks með marki Michal Sadilek og hefðu þeir getað bætt við en allt kom fyrir ekki.Það fór svo að Suður-Afríka jafnaði þegar skammt var eftir með marki Teboho Mokoena af vítapunktinum.Bæði lið eru með eitt stig eftir tap í fyrstu umferð. Tékkar töpuðu gegn Suður-Kóreu en Suður-Afríka gegn Mexíkó.