Hvasst og blautt víða - Vísir
Á Grænlandshafi er lægð sem hreyfist lítið og frá henni liggja skil yfir sunnan- og vestanvert landið með suðaustan kalda eða stinningskalda og rigningu eða súld með köflum. Á Norður- og Austurlandi er mun hægari vindur og yfirleitt bjart.