Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk - Vísir
Sem gamall Sjálfstæðismaður finnst mér ég eiga ekkert pólitískt bakland lengur. Sá Sjálfstæðisflokkur sem ég studdi lagði áherslu á frjálslyndi, opið markaðshagkerfi, samkeppni og að skapa skilyrði fyrir aukinni velsæld allra landsmanna. Í dag finnst mér flokkurinn hafa fjarlægst þau grunngildi.