Borgarstjóri kom af fjöllum - Vísir
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir fyrirætlanir um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og takmarka um leið aðgengi hjólabrettafólks hafa komið sér í opna skjöldu. Hún muni beita sér fyrir því að torgið verði áfram hluti af íslensku hjólabrettasenunni og nýr staður fundinn fyrir markaðinn.