Sannfærandi hjá Frökkum gegn Svíum | DV - Frjáls og óháður miðill
Frakkar eru komnir í 16-liða úrslit eftir afar sannfærandi sigur á Svíum í 32-liða úrslitum í kvöld.Svíar komu inn í leikinn af krafti en fljótlega tók franska liðið öll völd og komst það yfir seint í fyrri hálfleik með marki Kylian Mbappe.Bradley Barcola tvöfaldaði forskotið snemma í seinni hálfleik áður en Mbappe var aftur á ferðinni með mark þegar um stundarfjórðungur lifði leiks.Lokatölur 3-0. Frakkland flýgur því áfram og mætir Paragvæ í 16-liða úrslitunum.