Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara - Vísir
Það eru tvö ár síðan ég skrifaði greinina „Það er þetta með þorpið“. Mikið hefur gerst á þessum tveimur árum og eitthvað breyst, en eitt stendur enn: börnin okkar þurfa á okkur öllum að halda. Þau þurfa gott skólasamfélag, stuðning og fullorðið fólk sem trúir á þau og vinnur saman að því að skapa þeim góðar aðstæður til náms og þroska.