Kolbeinn og félagar komust áfram þrátt fyrir tvö vítaklúður - Vísir
Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði IFK Göteborg þegar liðið vann viðureign sína gegn FCI Levadia frá Eistlandi í framlengdum leik í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Sænska liðið brenndi af tveimur vítaspyrnum í venjulegum leiktíma en náði að skora tvö mörk í framlengingu til að tryggja sigurinn.