Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs - Vísir
Hinn 28 ára gamli Ísak Aron Jóhannsson er mikil stjarna í heimi matreiðslunnar og þykir einn fremsti kokkur landsins. Hann var að senda frá sér matreiðslubókina Bragð – Íslenskur matur og fagnaði því með pomp og prakt ásamt þotuliði úr kokkabransanum og góðum vinum.