„Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ - Vísir
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist ekki skilja hvers vegna tillaga um fækkun varaforseta ASÍ sé orðin að jafn stóru máli og raun ber vitni. Hún segir mun stærri mál til umfjöllunar á ASÍ þingi sem hófst í dag og segir ekki anda köldu á milli hennar og Sólveigar Önnu í daglegu lífi, né á milli hennar og nokkurs annars.