Krækti út úr sér augun eftir að hafa myrt manninn sem bauð honum far - Þetta var ástæðan | DV - Frjáls og óháður miðill
Eftir að Robert Brandon Keller, 32 ára karlmaður frá Georgíu í Bandaríkjunum, hafði myrt manninn sem bauð honum far ákvað hann að grípa til örþrifaráða til þess að sleppa við fangelsisvist. Nú er ljóst að sú tilraun hans bar ekki árangur og hefur hann verið sakfelldur fyrir að hafa myrt Bruce Dupree þann 14. október árið 2024.