Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 - Vísir
Hrafntinna Ingólfsdóttir er í grunnskóla. Hún lýkur 10. bekk og fær 7 í stærðfræði. Sjöan merkir samkvæmt nýju námsmati að hún hafi náð tilteknu lágmarksviðmiði í stærðfræði við lok grunnskóla og geti haldið áfram námi í greininni „á næsta hæfniþrepi í framhaldsskóla“, eins og segir á vef ráðuneytisins.