Húsfyllir hjá Karli Wernerssyni: „Sautján ár í súpunni“ - Vísir
Karl Wernersson athafnamaður stóð fyrir fundi í Smárabíói klukkan 13 undir yfirskriftinni Sautján ár í súpunni. Þar fór hann yfir sína hlið á þeim sautján árum sem liðin eru frá gjaldþroti Milestone. Fundurinn var vel sóttur og sjá mátti mörg þekkt andlit úr atvinnulífinu í salnum.