Grateful Dead á Sæbrautinni - Vísir
Það var heiðskírt í Reykjavík á föstudagskvöldið, sem telst orðið nægilegt tilefni til að menn taki eftir veðrinu, og um tíuleytið hafði Sæbrautin breyst í útileikhús. Ferðamenn stóðu þar með þrífætur og síma á lofti, sumir í nýjum dúnúlpum sem líklega höfðu verið keyptar fyrr um daginn með þeirri hugarró sem fylgir því að sjá ekki kortareikninginn fyrr en heim er komið.