Koeman hættur með hollenska landsliðið | DV - Frjáls og óháður miðill
Ronald Koeman hefur sagt af sér sem landsliðsþjálfari Hollands eftir vonbrigðin á HM.Koeman greindi frá ákvörðun sinni á Instagram í kvöld í kjölfar þess að Holland féll úr leik í 32-liða úrslitum gegn Marókkó í vítaspyrnukeppni.Holland vann riðil sinn með sigrum á Svíþjóð og Túnis og jafntefli gegn Japan. Liðið ætlaði sér hins vegar mun lengur en í 32-liða úrslit.Koeman hefur stýrt hollenska landsliðinu síðan 2023, en þá tók hann við liðinu öðru sinni.Meðal þeirra sem hafa verið nefndir sem mögulegir arftakar Koeman eru Arne Slot, Erik ten Hag og Peter Bosz.