Barn fyrir bíl - Vísir
Í fyrradag var ekið á átta ára dreng í Mosfellsbæ. Hann hlaut höfuðáverka og blóðnasir. Ökumaðurinn ók af vettvangi og skildi drenginn eftir grátandi. Fréttin birtist í gærmorgun og verður trúlega gleymd eftir nokkra daga. Eins og svo margar aðrar.