Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi - Vísir
Rússnesk Kh-101 stýriflaug á leið til Úkraínu lenti í Póllandi í nótt. Þetta segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, segir að „líklegast“ hafi verið um að ræða Kh-101 stýriflaug sem skotið er úr lofti. Atvikið sé enn til rannsóknar.