Að leggja bílnum sínum getur kostað allt að 75 þúsund krónur fyrir nokkra klukkutíma | DV - Frjáls og óháður miðill
Heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum hefur reynst dýr skemmtun fyrir stuðningsmenn og nú hefur verð á bílastæðum við SoFi Stadium í Los Angeles vakið mikla athygli.Samkvæmt erlendum miðlum kostaði bílastæði við leik Bandaríkjanna og Tyrklands allt að 200 bandaríkjadali. Á öðrum bílastæðum í grenndinni var verðið enn hærra, en við Kia Forum, í um tíu mínútna göngufæri frá leikvanginum, kostaði stæði yfir 400 dali. Þá var eitt bílastæði sagt rukka meira en 600 dali.