Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð - Vísir
Á Hellissandi rís nú hátíðarsvæði þar sem stefnt er á að taka á móti þúsundum erlendra og innlendra gesta á tónlistar- og viðburðahátíðina Iceland Eclipse. Von er á veðurvél til að tryggja gott veður. Skipuleggjandi segir að búið sé að hugsa fyrir öllu. Fólki verði skutlað í verslun og sund og tiltekt sé þaulskipulögð á meðan og eftir viðburð.