Tafir í Borgartúni næstu vikur - Vísir
Akstur um Borgartún til og frá Snorrabraut að Þórunnartúni verður á einni akrein næstu vikur. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur veitt Eykt ehf. leyfi til að nota aðra akgreinina til að fylla upp í skurð og ganga frá svæðinu en verið er að reisa hótel á þessum stað. Búast má við umferðartöfum þar á annatímum síðdegis og morgna.