Breytum þessu! - Vísir
Það hafa verið algjör forréttindi að fá tækifæri til að leiða lista Viðreisnar á Akranesi. Við erum að bjóða fram í fyrsta skipti í bænum okkar og erum í grunninn hópur fjölskyldufólks með fjölbreyttan bakgrunn. Við höfum einsett okkur að starfa af heiðarleika, fagmennsku og ábyrgð.