Óhagnaðardrifið hagkerfi – bíddu,
afhverju ekki? - Vísir
Eftir að ég flutti aftur til Íslands hef ég smám saman áttað mig á því að hugmyndin um óhagnaðardrifið hagkerfi á sérstaklega erfitt uppdráttar hér á landi. Hún er svo fjarri almennri umræðu að hún virðist varla til. Að vera óhagnaðadrifið virðist ekki vera hluti af almennum orðaforða Íslendinga – heldur ekki innan hagfræðinnar, viðskiptalífsins eða stjórnmálanna. Þegar ég reyni að kynna vel menntuðum vinum mínum fyrir raunveruleika óhagnaðardrifinna fyrirtækja vita þau oft ekki einu sinni hvernig slíkur rekstur virkar.