Andlátið virðist ekki hafa borið að með saknæmum hætti - Vísir
Lögreglufulltrúar í Greenville í Suður-Karólínufylki í Bandaríkjunum voru sendir að fjölbýlishúsi þar sem leikkonan Hayden Panettiere dvaldi í gær eftir að þeim barst tilkynning um meðvitundarlausa konu. Ekki liggur fyrir hvað dró hina 36 ára gömlu Panettiere til dauða en það virðist á öllu sem andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti.