Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum - Vísir
Elías Már Ómarsson skoraði þrjú marka Víkings þegar liðið kjöldró Fram í toppslag liðanna í 11. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld. Víkingur hefur níu stiga forskot á toppi deildarinnar eftir þennan sigur og fátt sem bendir til annars en að liðið verji Íslandsmeistaratitil sinn.