Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda - Vísir
Stúdentafélag Háskólans á Akureyri (SHA) hefur varað stúdentaráð annarra háskóla við háttsemi manns sem hafi haft samband við nemendur skólans og beðið þá um að senda sér gögn úr innra kerfi háskólans. Að sögn forseta Stúdentafélagsins hafi maðurinn ætlað að nýta sér upplýsingarnar í hagnaðarskyni en hann reki fyrirtæki sem bjóði upp á undirbúningsnámskeið fyrir háskólanema.