Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ - Vísir
„Ef þessir háu herrar í svörtuloftum ætla að fara að botnfrysta markaðinn og þar með framleiðslu íbúðarhúsnæðis, þá vitum við hvernig þetta endar,“ segir Vignir S. Halldórsson verktaki sem óttast að peningastefnunefnd Seðlabankans hækki vexti á morgun. „Þá springur allt í loft upp aftur og tugprósenta hækkun á íbúðaverði verður til.“