Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino - Vísir
Tugir þingmanna á Evrópuþinginu kalla eftir rannsókn á Gianni Infantino, forseta FIFA, og tengslum hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Til skoðunar er hvort Infantino hafi haft áhrif á þá fordæmalausu ákvörðun FIFA að aflétta leikbanni Folarin Balogun á miðju heimsmeistaramóti.