Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi - Vísir
Bresk kona, 31 árs gömul, er látin eftir að ráðist var á hana og hún stungin á Rosenheim-lestarstöðinni í Þýskalandi um klukkan eitt í nótt að staðartíma. Hún var flutt á sjúkrahús þar sem hún lést en hún hafði hlotið mjög alvarlega áverka. Maður sem er grunaður um verknaðinn verður leiddur fyrir dómara á eftir.