Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum - Vísir
Áfengi og önnur vímuefni koma við sögu í um þriðjungi rafskútuslysa meðal 17 ára og eldri. Rafskútuslysum sem leiða til komu á bráðamóttöku Landspítala hefur þó fækkað verulega á undanförnum árum, þrátt fyrir aukna notkun rafskútna á höfuðborgarsvæðinu. Fækkunin er sérstaklega áberandi meðal barna og ungmenna.