Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins - Vísir
Gríðarlegur fjöldi fólks lagði leið sína í prjónapartý á barnum Tipsy í síðustu viku. Mæting fór langt fram úr björtustu vonum og þurftu skipuleggjendur að fá að nýta húsnæði veitingastaðarins Fjallkonunnar við hliðina á líka fyrir mannskapinn.