Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar - Vísir
Verslunarmannahelgin er gengin í garð og landsmenn flykkjast um land allt í partíhug. Sumir hafa það í hyggju að ganga aðeins of hratt um gleðinnar dyr en Snorri Ásmundsson listamaður sá sér leik á borði og hefur hafið sölu á aflátsbréfum handa þeim sem vilja baktryggja sig í augum Guðs almáttugs.