Kokkalandsliðið stefnir á verðlaunapall eftir gull á fyrsta degi - Vísir
Kokkalandslið Íslands vann gull í Restaurant of Nations á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg á laugardag. Þar framreiddi liðið þriggja rétta kvöldverð fyrir 110 gesti þrátt fyrir óvænt rafmagnsvandamál í keppniseldhúsinu.