Registrieren

Registierung erfolgt in Kürze...
Fleebs-Logo
Details werden geladen...

Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með - Vísir

Ég var nýkominn í sumarfrí og sat úti á pallinum í góða veðrinu með kaffibolla og dagblað. Í kringum mig börn að leik með tilheyrandi hlátrasköllum. Það var notaleg stund þar sem ég hafði loksins tíma til að slaka á. Stuttu síðar greip ég ósjálfrátt símann og fór að fletta fréttum og samfélagsmiðlum, kíkti líka á póstinn. Tíminn leið allt í einu mjög hratt og þegar ég leit upp tók ég eftir því að þögn ríkti allt um kring, börnin höfðu líka gripið í símana sína. Fyrir örfáum mínútum höfðu þau verið að leika sér. Þá rann upp fyrir mér að ég hafði líklega gefið tóninn – án þess að segja eitt einasta orð.