Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu - Vísir
Nýjasta stórstjarnan í íslensku golfi, Gunnlaugur Árni Sveinsson, verður með á árlegu góðgerðarmóti Nesklúbbsins, Einvíginu á Nesinu, sem verður haldið á frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við Arion banka og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram.