Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind - Vísir
Gervigreind er nú í fyrsta skipti notuð sem vopn í kosningabaráttu á Spáni. Lýðflokkurinn, stærsti stjórnarandstöðuflokkur landsins, notaði tæknina til þess leggja keppinautum sínum orð í munn, meðal annars um vændiskaup og spillingu.