Eigendur Tottenham dæla milljörðum inn í reksturinn fyrir sumarið | DV - Frjáls og óháður miðill
Eigendur Tottenham, Lewis-fjölskyldan, hafa lagt félaginu til 100 milljónir punda í nýtt rekstrarfé, samkvæmt Sky Sports.Þetta er önnur stóra fjárfesting eigendanna á skömmum tíma, en alls hafa þeir nú sett 200 milljónir punda inn í félagið frá lokum árs 2025. Gert er ráð fyrir að frekari fjármunir verði lagðir til á næstu misserum.Fjármagnið verður ekki aðeins nýtt á félagaskiptamarkaðnum heldur einnig til að styðja við endurfjármögnun skulda sem nema yfir 450 milljónum punda.