Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin - Vísir
Það vakti mikla athygli þegar Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, tilkynnti starfslok sín en hann gaf engin skýr svör við því hvers vegna hann hafi ákveðið að hætta fyrr. Nú hefur hann sagt ágreining sem olli starfslokunum meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð en hann gangi mjög sáttur frá borði og fyrirtækið sé á góðum stað.