Harmleikur á HM - Lést eftir að fullur bílstjóri keyrði á hann | DV - Frjáls og óháður miðill
Mikil sorg hefur gripið um sig í kringum Heimsmeistaramótið eftir að sjálfboðaliðinn Aaron Avery lést af völdum meiðsla sem hann hlaut þegar bifreið ók á hann í Los Angeles.Avery, sem var aðeins 22 ára gamall, starfaði við öryggisgæslu á SoFi Stadium þar sem hann hafði verið við vinnu á leik Írans og Nýja-Sjálands. Eftir leikinn var hann á leið heim þegar hann varð fyrir bíl sem samkvæmt fréttum var ekið af ökumanni sem grunaður er um ölvunarakstur.