Yfirgefur franska landsliðið vegna andláts móður sinnar | DV - Frjáls og óháður miðill
Didier Deschamps verður ekki á hliðarlínunni þegar Frakkland mætir Noregi í lokaumferð riðlakeppni Heimsmeistaramótsins þann 26. júní.Franska knattspyrnusambandið staðfesti í kvöld að Deschamps hefði yfirgefið landsliðshópinn tímabundið og haldið heim til Frakklands vegna andláts móður sinnar. Hann mun vera viðstaddur jarðarför hennar á næstu dögum.Í fjarveru Deschamps mun aðstoðarþjálfarinn Guy Stéphan stýra franska liðinu gegn Noregi.