Framkoma Hjörvars Hafliðasonar í Miami vekur mikla athygli - „Ég vil ekki að þetta rati í fréttirnar“ | DV - Frjáls og óháður miðill
Hjörvar Hafliðason, sjálfur Dr. Football var mættur á leik Portúgals og Kólumbíu í Miami á laugardag. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli. Hjörvar fór ásamt fríðum hópi manna á tvo leiki á HM í fótbotla en framkoma hans eftir leik á laugardag vekur athygli. Á samfélagsmiðlum birtist myndband af Hjörvari að týna upp rusl í stúkunni eftir leik. Hefur það oft vakið athygli fjölmiðla þegar fólk týnir upp rusl eftir leiki og Hjörvar lét sitt ekki eftir liggja í Miami.