SFS, hagsmunir og sannleikurinn - Vísir
Það dylst engum að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), með löglærða framkvæmdastjóra sinn í stafni, eru mótfallin öllum tilraunum til að færa íslenskt efnahagslíf nær Evrópusambandinu. Reyndar má velta fyrir sér hvort sú stefna sé frekar mótuð með hliðsjón af hagsmunum atvinnugreinarinnar sjávarútvegs eða eigenda sjávarútvegsfyrirtækjanna.