Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt - Vísir
Einar Hrafn Stefánsson, stofnandi Icebreaker- smáforritsins, segir það óvænt að appið, sem var hannað fyrir ferðamenn, sé í mikilli notkun heimamanna. Búið er að bæta við appið aukinni þjónustu fyrir Íslendinga og er nú hægt að skoða dagskrár íslenskra hátíða í appinu, til dæmis Airwaves sem hefst í vikunni.