Yfir átta hundruð gróðureldar loga í Kanada og meirihluti þeirra telst stjórnlaus að sögn yfirvalda. Þó nokkrir stórir eldar loga í Ontario og líkt og sést á myndum frá svæðinu er gríðarleg mengun í loftinu. Mengunin nær allt niður á austurströnd Bandaríkjanna og hefur fólki sums staðar verið ráðlagt að halda sig inni vegna slæmra loftgæða. Von er á rigningu á næstu dögum og ætti það að hjálpa að einhverju leyti í baráttu við eldana. Lestarstarfsmenn
Videos
Gróðureldar loga í Kanada
Ähnliche Seiten
Veggur við Hringbraut fær nýtt líf - Sjónvarp - Vísir