„Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ - Vísir
„Ég hef gaman af því þegar eitthvað sérstakt eða umdeilt kemur í tísku og setur Internetið alveg á hliðina,“ segir hin 21 árs gamla Snædís Baldursdóttir sem elskar tísku og hlakkar alltaf til að klæða sig upp. Hún starfar á leikskóla og sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla samhliða því að sinna fyrirsætustörfum í frítíma sínum. Í haust stefnir hún á lögfræðinám við Háskóla Íslands.