Sendi ríflega 300 fyrirspurnir: „Sjálfstæðismenn orðnir hinir nýju Píratar“ - Vísir
Guðlaugur Þór Þórðarson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd, hefur síðustu daga sent rúmlega þrjú hundruð fyrirspurnir til ráðuneyta. Formaður nefndarinnar sakar Guðlaug um að reyna að „setja sand í tannhjólin“ og kallar Sjálfstæðismenn „hina nýju Pírata“. Guðlaugur segir þetta vera einu leiðina til að nálgast tiltekin gögn um fjárlagafrumvarpið sem ekki sé að finna í opinberum gögnum.