Fá rúmlega fimm milljarða króna fyrir að samþykkja áform Infantinos - Vísir
Aðildarríki FIFA hafa frest til 19. september til að samþykkja umdeildar áætlanir Giannis Infantino, forseta Alþjóða knattspyrnusambandsins. Þau aðildarríki sem leggja blessun sína yfir áætlanirnar fá fjörutíu milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut.