Er Marta Kos einnig að plata?.. en það má ekki plata - Vísir
Ísland ber þá gæfu að hafa jafnan kosið stangheiðarlega og grandvara menn til setu á Alþingi. Því vakti það athygli þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, nýbúin að mynda ríkisstjórn með Þorgerði Katrínu (og eftir atvikum Ingu), lýsti því yfir að í mikilvægum ráðherraembættum „mætti ekki plata“. Menn áttuðu sig ekki strax á því hvert hún var að fara. Nú, viku fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, hillir undir skýringuna.