8 ára stúlku var nauðgað og skilin eftir til að deyja | DV - Frjáls og óháður miðill
Jennifer Schuett vara bara átta ára þegar henni var rænt frá heimili sínu um miðjan nótt. Henni var síðan nauðgað, reynt að kyrkja hana og hún skilin eftir nær dauða á lífi á akri, áður hafði hún verið skorin á háls.Það var aðfaranótt 10. ágúst 1990 sem Jennifer var numin á brott. Hún hafði sofið órólega og því spurði móðir hennar, Sharon McBride, hana hvort hún gæti ekki sofið í sínu eigin rúmi þessa nótt.„Ég fór inn í herbergið mitt og las þangað til ég sofnaði,“ sagði Jennifer síðar.